Um 60 björgunarsveitarmenn leituðu

Maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftri fyrr í kvöld er kominn fram. Hann fannst við Fjörugrandann, kaldur en að öðru leyti í lagi.

Björgunarsveitir voru kallaðar út til leitar rétt eftir kl. 18.00 í kvöld, samkvæmt upplýsingum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Um 60 björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu leituðu mannsins. Hann kom í leitirnar um klukkan 20.00 og var þá staddur úti á Granda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert