Sjö voru kærðir fyrir ölvun við akstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt og einn fyrir akstur undir áhrifum lyfja. Að sögn lögreglu var nokkur ölvun í miðbænum og voru fangageymslur nærri fullar. Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir en ekki mun hafa verið um alvarlega áverka að ræða.