Hross drapst þegar bíll með hestakerru fór út af veginum við Þorbergsstaði, skammt frá Búðardal fyrir stundu. Bíllinn hélst á hjólunum en kerran valt. Fjögur hross voru í kerrunni og varð eitt hrossanna undir kerrunni. Ekki var ljóst hvort hinum hrossunum þremur varð meint af byltunni. Þau voru teymd að Þorbergsstöðum þar sem verið er að skoða þau.