Einn maður var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kom upp í íbúð við Stigahlíð um miðnætti. Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kvatt á staðinn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Sex íbúðir eru í húsinu en aðrir íbúar voru ekki í hættu.