Rúmur helmingur telur að mótmæla- og borgarafundir endurspegli viðhorf þjóðarinnar. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem gerð var 2.-5. desember. Alls svöruðu 2.464 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára könnuninni. Alls telja 55,4% svarenda að boðskapur mótmæla- og borgarafunda undanfarinna vikna endurspegli viðhorf meirihluta þjóðarinnar.
Mikill munur mælist á afstöðu fólks til fundanna eftir stuðningi við stjórnmálaflokka og stuðningi við ríkisstjórnina. Af þeim sem segjast styðja ríkisstjórnina eru 18% sem telja að fundirnir endurspegli viðhorf þjóðarinnar. Meðal þeirra sem eru andvígir ríkisstjórninni er þetta sama hlutfall aftur á móti tæp 80%.
Horft til þess hvaða flokka fólk segist myndu kjósa ef gengið væri til kosninga í dag þá eru rétt um 10% þeirra sem segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn sem telja að fundirnir endurspegli viðhorf meirihluta þjóðarinnar. Á hinn bóginn eru tæp 57% Samfylkingarfólks og rúm 82% Vinstri grænna sem telja að mótmæla- og borgarafundir undanfarinna vikna endurspegli viðhorf meirihluta þjóðarinnar.
Niðurstaða könnunar MMR í heild