N1 hefur lækkað verð á hjólbörðum um að meðaltali 5% í dag vegna styrkingar íslensku krónunnar. Unnið er að því þessa dagana að fara í gegnum verðútreikninga á flestum söluvörum félagsins með það að markmiði að lækka verð, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.