Nýskráningar ökutækja á fyrstu 340 dögum ársins er samtals 17.405 en á sama tímabili í fyrra voru 28.595 ökutæki nýskráð hérlendis. Þetta er 39,1% fækkun nýskráninga milli ára. Í fyrstu vinnuviku desember á þessu ári voru skráð 32 ökutæki en á sama tímabili í fyrra voru þau 471. Þetta er aðeins 6,8% þess fjölda sem var nýskráður á sama tíma í fyrra.
Þetta kemur fram í fréttabréfi Umferðarstofu sem sýnir yfirlit yfir nýskráningar ökutækja og eigendaskipti á tímabilinu frá 1. janúar 2008 til 5. desember 2008.
Tekið er fram að hér sé um að ræða nýskráningu og eigendaskipti allra ökutækja ekki bara bifreiða.
Eigendaskipti ökutækja á sama tímabili þessa árs eru 79.322 en þau voru 100.270 eftir jafn marga skráningardaga á síðasta ári. Hlutfallsleg lækkun eigendaskipta nemur því 20,9% milli ára.