Samkvæmt árlegri samantekt Google leitarvefsins var bankahrunið á Íslandi einn þeirra atburða ársins sem vakti hvað mesta forvitni almennings í Bretlandi á þessu ári. Þetta kemur fram á fréttavef Times Online.
Google birtir á hverju ári lista yfir hástökkvara leitarorða og er Icesave þar efst á lista yfir ný vinsæl viðskiptaleitarorð í Bretlandi.
Af óflokkuðum fréttum vöktu sameindarafallinn, Sarah Palin, Heath Ledger, Ólympíuleikarnir í Peking og Barack Obama hins vegar mestan áhuga.
Facebook sá vefur sem flestir tengdust en fréttavefur BBC, tónlistarvefurinn YouTube, og söluvefurinn eBay voru aðrir vinsælustu vefir ársins á meðal Breta.