Hefð hefur skapast fyrir því hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur að borgarstjórinn opni jólaskóginn í Heiðmörk. Svo var einnig í dag þegar Hanna Birna Kristjánsdóttir mætti á svæðið. Helgarnar til jóla geta borgarbúar mætt í Hjalladal milli kl. 11 og 16 og fengið sér í leiðinni heitt kakó og kökur.