Tilkynnt var um skemmdarverk á Háteigskirkju til lögreglu um tvöleytið í dag. Spreyjað og krotað var á veggi kirkjunnar á talsvert stórum fleti og talið að tjónið sé umtalsvert.
Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var einn maður handtekinn í dag vegna málsins. Honum var sleppt að lokinni yfirheyrslu.