Samkomulag er orðið milli ríkisstjórnarflokkanna um að fella niður vísistölutengingu sem bundin er í búvörusamningum. Í stað þess að búvörusamningar verði vísitölutengdir að fullu verður miðað við þá krónutölu sem lagt var upp með þegar fjárlagafrumvarpið var fyrst lagt fram í byrjun október. Þetta kemur fram á vef Bændasamtakanna.
„Það þýðir að upphæðin sem rennur til
búvörusamninganna verður 5 til 6 prósentum hærri árið 2009 en á hún var
á fjárlögum líðandi árs. Verðbólguspár gera hins vegar ráð fyrir því að
um mitt næsta ár verði verðbólgan um 15 prósent. Er þetta því skerðing
á gerðum samningum upp á 9 til 10 prósent. Ef verðbólguspáin gengur
eftir má gera ráð fyrir 700 til 800 milljóna króna skerðingu til bænda
í heildina," að því er segir á vef Bændasamtakanna.
Einar Kristinn Guðfinnsson landbúnaðarráðherra segir á vef Bændasamtakanna
að ákvörðunin sé tekin og að hún standi.
„Það er samstaða milli
ríkisstjórnarflokkanna um þessa ákvörðun og það er orðið ljóst að hún
stendur. Ég játa það fúslega að þetta var ekki léttbært skref að taka
en staðreyndin er sú að ég, eins og aðrir í ríkisstjórninni, stend
frammi fyrir þessari hræðilegu stöðu. Þrátt fyrir þann niðurskurð sem
boðaður er í fjárlagafrumvarpinu er búist við að ríkissjóður verði
rekinn með 160 til 170 milljarða króna halla á næsta ári. Það svíður
auðvitað einhvers staðar undan þegar þarf að skera niður með þessum
hætti. Ég hafði sagt það að ég vildi í lengstu lög reyna að verja
búvörusamningana en eftir mikla yfirlegu þá sáum við ekki aðra leið
heldur en þessa.“
Forystumönnum
bænda var kynnt ákvörðunin í síðustu viku. Einar Kristinn segir að ekki
sé um neitt samkomulag að ræða heldur sé þetta einhliða ákvörðun
ríkisstjórnarinnar. „Nei, það er ekkert samkomulag við bændur um þennan
niðurskurð. Ég skil afar vel gremju bænda og ég veit að þeir eru lítt
aflögufærir. Ríkissjóður er hins vegar í grafalvarlegri stöðu og menn
verða að skilja það. Stærðargráða þessara skerðinga ræðst af
verðbólgunni og við höfum von um að það takist að kýla hana niður svo
að þessi ákvörðun hafi ekki eins mikil áhrif og nú er útlit fyrir. Til
þess eru góðir möguleikar og við verðum bara að vona að það takist,“ að því er fram kemur á vef Bændasamtakanna.
Haraldur
Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands segir ákvörðunina mikil
vonbrigði. „Þetta eru augljós samningsrof og í okkar huga er þetta
auðvitað ólöglegur gjörningur. Við höfum þegar mótmælt þessari ákvörðun
og komið þeim mótmælum ásamt áliti lögmanna á samningsrofinu til
landbúnaðarráðherra. Við munum síðan fylgjast með hverju fram vindur í
meðförum Alþingis á málinu því það er auðvitað ekki búið að samþykkja
fjárlögin. Hins vegar er allt sem bendir til þess að þessi leið verði
farin ef orð ráðherra um að samstaða sé milli ríksstjórnarflokkanna um
skerðinguna,“ að því er fram kemur á vef Bændasamtakanna.