Samningaviðræður sjómanna í góðum farvegi

Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍU, segir samningaviðræður við forystu sjómanna í góðum farvegi. „Ef allt gengur upp er stefnt að því að ljúka þeim fyrir jól.“

Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, kveðst frekar vongóður um að það takist að klára málið fyrir jól. „Þetta þokast en það er ekki búið.“

Kjarasamningar sjómanna losnuðu 1. júní en menn hafa verið að talast við allt árið, að sögn Sævars. „Við þurftum að fá útreikninga utan frá vegna kostnaðar vegna slysatrygginga sem við viðurkennum fúslega að er gríðarlega hár og miklu hærri en aðilar gerðu sér grein fyrir að myndi verða.“ Aðgerðir til að fækka slysum um borð eru nauðsynlegar að mati sjómanna.

Útgerðarmenn hafa krafist aukinnar þátttöku sjómanna vegna olíukostnaðar. „Sjómenn hafa í áratugi tekið þátt í olíukostnaði og krafist þess að sú þátttaka yrði afnumin. Það segir sig sjálft að langt er á milli þegar komið er með kröfur um að bæta í,“ segir Sævar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert