Stjórn Samtaka atvinnulífsins hefur ákveðið að samtökin muni ekki beita sér fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu og upptöku evru á Íslandi. Er þetta ákveðið á grundvelli niðurstöðu skoðanakönnunar meðal aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins um afstöðu þeirra til þess hvort samtökin eigi að beita sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru.
Niðurstöður skoðanakönnunar voru kynntar á fundi stjórnar SA í dag. Meirihluti er í fimm aðildarsamtökum SA fyrir því að SA beiti sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru en meirihluti í þremur er því andvígur.
Segir á vef samtakanna að SA mun áfram vera virkur þátttakandi í Evrópuumræðunni og gæta hagsmuna allra félagsmanna á grundvelli þess að skoðanir eru skiptar um hvort sækja eigi um aðild að ESB eða ekki.
Skoðanakönnun SA fór fram dagana 24. nóvember - 5. desember 2008. Félagsmenn voru spurðir: Vill þitt fyrirtæki að SA beiti sér fyrir aðild Íslands að ESB og upptöku evru sem gjaldmiðils á Íslandi? Svarmöguleikar voru já, nei og tekur ekki afstöðu. Könnunin var send til 1.649 félagsmanna í átta aðildarfélögum SA. Fyrirtækin hafa vægi í samtökunum eftir stærð og var þátttakan 62,6% á grundvelli atkvæðavægis fyrirtækjanna.
Niðurstaðan var sú að fyrirtæki með 42,7% atkvæða svöruðu spurningunni játandi, 40,1% neitandi og 17% tóku ekki afstöðu. Ef einungis er litið til þeirra sem tóku afstöðu svöruðu 51,6% játandi og 48,4% neitandi.
Afstaða SVÞ er eindregið með því að SA beiti sér fyrir aðild að ESB og upptöku evru en samtök sjávarútvegsins eru eindregið á móti. Meirihluti innan SAF og SI svöruðu játandi en meirihluti innan SART svaraði neitandi. Innan SFF og Samorku tók mikill meirihluti ekki afstöðu.