Vodafone fagnaði því í dag að hafa lokið áfanga í uppbyggingu GSM þjónustu á Vestfjörðum með því að hringja úr stærsta síma í heimi á Gemlufellsheiðinni.
„Við vorum að ljúka með táknrænum hætti því uppbyggingarverkefni sem staðið hefur yfir á Vestfjörðum á árinu. Það hefur skilað margfalt stærra GSM-svæði í fjórðungnum en var í upphafi árs. Um það bil 30 GSM-sendar hafa farið í gang á árinu. Bæði er þetta verkefni á okkar eigin vegum og svo fyrir Fjarskiptasjóð sem samgönguráðuneytið stendur á bak við“, segir Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi Vodafone, í samtali við bb.is.
Haraldur Júlíusson formaður Björgunarfélags Ísafjarðar hringdi í Neyðarlínuna til að staðfesta það að hægt væri að hringja úr símanum og svo var hringt í samgönguráðherra og hann upplýstur um að þessum kafla í verkefninu væri lokið.
Vodafone hefur í ár unnið að því að koma upp sendum upp um allt land en drægni þeirra er mjög mikil og skiptir uppbyggingin því miklu máli á miðunum í kringum Ísland og til fjalla. Öllum að óvörum átti Gáttaþefur leið framhjá þar sem hann ætlaði að heimsækja leikskólabörn á Þingeyri. Hann var að vonum mjög forvitinn um hvað væri á seyði og fékk að hringja eitt símtal.