Ríkisskattstjóri segir, að kveða þurfi skýrt á um það í lögum að bankastofnunum verði gert skylt að senda upplýsingar í lok hvers árs um bankainnistæður, vaxtatekjur, skuldir og vaxtagjöld.
„Það er mikilvægt við þær aðstæður sem nú ríkja að tekið verði af skarið og gerðar þær breytingar sem svipt geti brott þeim leyndarhjúp sem varnað hefur því að tryggt sé að allir greiði sín lögboðnu gjöld," segir Skúli Eggert í greininni. „Aðeins þannig næst réttmæt skattframkvæmd og réttlát jöfnun þeirra byrða sem komandi kynslóðum er ætlað að bera."