Síðasti skiladagur jólapósts 19. desember

Pósturinn minnir á síðasta örugga skiladag sendinga jólakorta og jólapakka innanlands fyrir jólin, 19. desember, svo allt skili sér í tæka tíð fyrir jólin. Síðasti dagur fyrir TNT hraðsendingar til landa utan Evrópu er fimmtudagurinn 18. desember en 19. desember fyrir TNT hraðsendingar til Evrópu.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá Póstinum.

Auka opnunartími er á öllum pósthúsum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri fyrir jólin. Allar nánari upplýsingar um síðustu skiladaga, staðsetningu pósthúsa, opnunartíma og þjónustu Póstsins er að finna á vef Póstsins

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert