Miðstjórn Alþýðusambands Íslands segir það óhjákvæmilegt, að ráðast í það erfiða verkefni að taka á hallarekstri ríkissjóðs. Afar mikilvægt sé að varin verði staða þeirra sem minnst mega sín við þessar erfiðu aðstæður, s.s. elli- og örorkulífeyrisþega.
Í ályktun, sem samþykkt var í dag, segir að ljóst sé að það taki nokkur ár að koma ríkisfjármálunum í jafnvægi. Miðstjórnin leggi á það áherslu að stjórnvöld leggi fram tillögur sem taka á því hvernig jafnvægi verði komið á ríkisreksturinn á næstu árum og óvissu verði þannig eytt.
„Miðstjórnarfundur haldinn 17. desember 2008 telur afar mikilvægt að varin verði staða þeirra sem minnst mega sín við þessar erfiðu aðstæður, s.s. elli- og örorkulífeyrisþega. Í þeim ráðstöfunum sem kynntar hafa verið vantar verulega á að þetta hafi verið gert. Heildarsamtök launafólks ákváðu því í síðustu viku að fresta öllum viðræðum um endurskoðun og gerð nýrra kjarasamninga vegna áranna 2009 og 2010 fram yfir áramót. Ef takast á að skapa ásættanlegan grundvöll að slíkri vinnu telur miðstjórn ASÍ nauðsynlegt að gerðar verði breytingar á eftirfarandi þáttum: