Lögreglan á Blönduósi gerði húsleit í íbúðarhúsi á Skagaströnd í gærkvöldi, vegna gruns um að þar væri verið að rækta kannabisplöntur. Grunur lögreglu reyndist á rökum reistur og lagði lögreglan hald rúmlega 150 kannabisplöntur ásamt búnaði, sem var notaður við ræktunina. Tveir voru handteknir.
Að sögn lögreglunnar var ræktunin vel á veg komin.
Mönnunum var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Að sögn lögreglu er ekki grunur um að afrakstur ræktunarinnar hafi verið kominn í dreifingu.
Málið er í rannsókn.