Stjórn Stapa lífeyrissjóðs ákvað á stjórnarfundi í dag að lækka tímabundið dráttarvexti af iðgjaldakröfum til sjóðsins. Dráttarvextir af iðgjaldakröfum verða því 10% frá 1. október sl. til 28. febrúar 2009 vegna uppgjöra sem gerð eru á þessu tímabili, þetta kemur fram á vef Einingar-Iðju.
Þar segir jafnframt að þeir sem ekki geri upp vanskil á þessu tímabili muni greiða þá almennu dráttarvexti sem í gildi séu.
Almennir dráttarvextir eru nú 26,5% en munu lækka í 25% þann 1. janúar nk