Enginn reyndist með allar tölur réttar í Lottóútdrætti kvöldsins. Potturinn var samtals rúmar 14,5 milljón króna og bætist sú upphæð því við vinningsupphæð næstu viku. Vinningstölur kvöldsins voru: 2, 4, 12, 15 og 39, en bónustalan var 34. Einn var með fjórar tölur réttar og bónustöluna og hlaut að launum tæpar 640 þúsund krónur. Jókertölur kvöldsins voru: 8 - 6 - 9 - 7 - 5.