Alþingi samþykkti samhljóða lög um heimild til
fjárhagslegrar fyrirgreiðslu úr ríkissjóði í tengslum við málshöfðun
fyrir erlendum dómstólum vegna íþyngjandi stjórnvaldsákvarðana erlendra
stjórnvalda á tímabilinu 1. október til 1. desember 2008.
Samkvæmt
lögunum verður íslenskum félögum, einkum íslensku bönkunum, gert
mögulegt að höfða mál gegn breskum stjórnvöldum fyrir að frysta eignir
Landsbanka Íslands á grundvelli ákvæða í hryðjuverkalögum og knýja Kaupþing Singer & Friedlander í greiðslustöðvun.
Lagafrumvarpið
var flutt af þingmönnum allra flokka sem eiga sæti á Alþingi, en samið af Sigurði Kára Kristjánssyni, fyrsta flutningsmanni þess,
og Helga Áss Grétarssyni, lögfræðingi og sérfræðingi við Lagastofnun
Háskóla Íslands.