Göngumaður útskrifaður af slysadeild

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF.
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF. mynd/Guðmundur St. Valdimarsson

Karlmaður, sem þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF sótti í gærkvöldi á Skarðsheiði, hefur verið útskrifaður af slysadeild í Landspítalans í Fossvogi. Björgunarsveitir fundu manninn í gærkvöldi sem var ekki fær um gang niður af heiðinni.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 21:15 beiðni um aðstoð þyrlunnar við að flytja manninn undir læknishendur.  Var hann orðinn örmagna og ekki mögulegt að bera manninn niður af fjallinu enda var hann einnig mjög kaldur. Veður var slæmt á svæðinu 15 m/sek og  skafrenningur.

Að sögn þyrluáhafnar gekk björgunin mjög vel, undirbúningur og móttaka björgunarsveitarmanna var að þeirra sögn til fyrirmyndar. Lent var á Reykjavíkurflugvelli kl. 22:50 þar sem sjúkrabifreið beið og flutti manninn á sjúkrahús.

Var maðurinn á göngu ásamt félaga sínum og urðu mennirnir viðskila þegar annar þeirra var of þreyttur til að halda áfram göngunni. Var björgunarsveitum gert viðvart og var félagi mannsins með nokkuð nákvæma staðsetningu félaga síns, einnig voru björgunarsveitarmenn í sambandi við manninn í gegnum síma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert