Áskriftum í hádegismat í grunnskólum Reykanesbæjar hefur fjölgað mikið að undanförnu að sögn Fannýjar Axelsdóttur, framkvæmdastjóra Skólamatar.
Skólamáltíð hjá grunnskólum Reykjanesbæjar kostar 190 kr. í áskrift og er niðurgreidd um 231 kr. af bænum. Þetta er lægsta verð sem býðst á meðal stóru sveitarfélaganna, að því er segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ.
Fanný bendir á að foreldrar líta á áskriftarverðið sem leið til sparnaðar og því virðist áskriftum vera að fjölga. Þetta sé ekki síður jákvætt fyrir börnin sem þar með eru trygggðar næringarríkar máltíðir í hádegi.