Læknar, hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar standa vaktina í kvöld jafnt sem önnur kvöld ársins. Skv. upplýsingum frá Barnaspítala Hringsins fá fjögur til fimm börn leyfi að fara heim til sín í kvöld. Tvö börn verða hins vegar á spítalanum í kvöld.
Að sögn hjúkrunarfræðings mun andi jólanna ríkja á barnadeildinni, og munu vinir og ættingjar heimsækja börnin og borða með þeim jólamat.
Alls verða fimm á vakt á Barnaspítala hringsins í kvöld, bæði hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar.