Eldur kviknaði nú síðdegis í potti á eldavél í Hraunbænum. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er búið að slökkva eldinn og verið að reykræsta íbúðina. Einn var fluttur á slysadeild vegna reykeitrunar, íbúi í íbúðinni en hann hafði sofnað út frá potti.