Brotist var inn á hreppsskrifstofur Kjósarhrepps í Ásgarði um jólin, að því er fram kemur á vef hreppsins, kjos.is. Hurðum var sparkað upp með tilheyrandi skemmdum og tölvum stolið, m.a. bókhaldi hreppsins. Talið er að einn einstaklingur hafi verið að verki og er lýst eftir ábendingum um mannaferðir við Ásgerð frá 20. desember sl.
Á vef hreppsins segir ennfremur að ekki hafi verið tilkynnt um fleiri innbrot á svæðinu, en húseigendur eru beðnir um að huga að eigum sínum.