Nokkur hundruð manna mótmæla nú á Austurvelli og krefjast kosninga. Um er að ræða vikuleg mótmæli sem hafa verið allt frá bankahruninu í október. Ræðumenn eru Hörður Torfason, skipuleggjandi mótmælanna, Ragnhildur Sigurðardóttir og Björn Þorsteinsson. Að sögn lögreglu er rólegt yfirbragð á mótmælunum að þessu sinni.