Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður lokað í dag en þar eru 15 m/sek, fjögurra stiga hiti og rigning. Á Dalvík verður opið frá kl. 12:00 til 16:00. En í Hlíðarfjalli og Tindastól verður opið frá kl. 10:00-16:00. Hvasst er í Hlíðarfjalli en gott veður á skíðasvæði Sauðkræklinga í Tindastól.