Um áramótin verða gerðar breytingar á
grenndargámakerfi Sorpu. Aukin tæki í flokkunarmálum gerir okkur nú kleift að
endurvinna pappír og pappírsumbúðir á sama hátt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Móttökuaðili Sorpu fyrir endurvinnanlegan pappír í Svíþjóð getur unnið pappírsefnið enn betur en áður hefur þekkst, flokkað það frekar og endurunnið í nýjar vörur.
Í ljósi þess hefur Sorpa ákveðið að auka þjónustu sína enn frekar og auðvelda fólki flokkun með því að í samnýta bláa grenndargáminn undir bæði pappír og pappírsumbúðir og taka á móti plastumbúðum í grænan grenndargám.
Plastumbúðirnar verða ýmist nýttar til orkuvinnslu eða til endurnýtingar bæði hérlendis og erlendis."
Grenndarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu eru um 80 talsins og á hverri stöð eru tveir gámar.