Lítill hópur fólks, sem mótmælti blóðsúthellingum á Gasasvæðinu, fór þaðan að Bandaríska sendiráðinu og heldur nú áfram mótmælum þar.
Lögregla telur að um 200 manns hafi tekið þátt í mótmælunum á Lækjartorgi kl. 16 í dag, sem fóru friðsamlega fram að hennar sögn.
Þar var þess krafist að „fjöldamorð Ísraelshers á Gasa“ yrðu stöðvuð og að stjórnmálasambandi við Ísrael yrði slitið.