Árshitinn var vel yfir meðallagi á landinu og er þetta 13. árið í röð með
hita yfir meðallagi í Reykjavík og það tíunda á Akureyri. Árið var 17. hlýjasta
ár frá upphafi samfelldra mælinga í Reykjavík (1870), 14. hlýjasta árið í
Stykkishólmi (mælingar frá 1845) og 22. hlýjasta á Akureyri (mælingar frá
1882).
Úrkoma var nærri meðallagi norðan- og austanlands, en yfir því um
sunnan- og vestanvert landið. Mest var úrkoman að tiltölu við Breiðafjörð og
víða á Vestfjörðum. Árið byrjaði með mikilli úrkomutíð en þurrviðrasamt var
framan af sumri. Mikið rigndi síðan í september, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar.
Snjór var ívið meiri en
verið hefur frá aldamótum en náði þó rétt í meðaltal áratuganna þar á undan.
Alhvítir dagar í Reykjavík voru 64 og er það 9 dögum meira en að meðaltali 1961
til 1990, en í tæpu meðallagi sé miðað við 1971 til 2000.
Í Reykjavík
mældust 1463 sólskinsstundir og er það 195 stundum umfram meðallag. Mestu munaði
um óvenjusólríkan júnímánuð. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 1089 og er
það 44 stundum umfram meðallag.