Ríkisstjórnin nýtur stuðnings 36% kjósenda

Frá ríkisráðsfundi á Bessastöðum á gamlársdag
Frá ríkisráðsfundi á Bessastöðum á gamlársdag mbl.is/Árni Sæberg

Stuðningur við ríkisstjórnina hefur aukist frá fyrra mánuði samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups og fleiri segjast myndu kjósa Sjálfstæðisflokk nú en fyrir mánuði. Vinstri grænir eru engu að síður áfram með mest fylgi stjórnmálaflokka landsins. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.

Þjóðarpúls Gallup mælir mánaðarlega fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi og einnig stuðning við ríkisstjórn landsins. Frjálslyndi flokkurinn hefur minnst fylgi. Hann fengi tæp 4% atkvæða ef kosið yrði nú. Fylgi flokksins hefur aukist um tæpt prósentustig milli mánaða. Flokkurinn nýtur hins vegar mun minna fylgis nú en í kosningunum í maí 2007 þegar hann fékk um 7% greiddra atkvæða.

Rúmlega 7,5% kjósenda myndi greiða Framsóknarflokknum atkvæði sitt ef gengið yrði til kosninga nú. Stuðningur við flokkinn er nánast sá sami og fyrir mánuði en mun minni en þegar síðast var kosið, þá hlaut Framsókn um 12% atkvæða.

Sjálfstæðisflokkurinn er áfram þriðji stærsti flokkurinn. Eftir að hafa fengið um 37% greiddra atkvæða í síðustu alþingiskosningum mælist flokkurinn nú með um 25% fylgi. Forysta flokksins má kannski vel við una því fylgið mælist um 4 prósentustigum meira nú en þegar þjóðarpúls var mældur fyrir um mánuði. Samfylkingin er næststærsti flokkurinn; mælist nú með um 28% fylgi.

Öfugt við samstarfslokkinn í ríkisstjórn hefur fylgi Samfylkingar minnkað frá síðasta þjóðarpúlsi, um3 prósentustig.

Flestir kjósendur, eða um 29%, myndu hins vegar greiða frambjóðendum Vinstri grænna atkvæði sitt ef kosið yrði til Alþingis nú. Fyrir mánuði mældist flokkurinn með 32% fylgi sem er um 3 prósentustigum meira en nú.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka