Vill láta fresta hækkun á raforkuverði

Jón Bjarnason
Jón Bjarnason

Jón Bjarnason, þingmaður VG í Norðvesturkjördæmi, hefur sent fjárlaganefnd bréf þar sem farið er fram á fund í nefndinni til að ræða allt að 40% hækkun á dreifingarkostnaði raforku til neytenda frá 1. janúar 2009.

Jón fer fram á að hækkunin komi ekki til framkvæmda fyrr en Alþingi hefur fjallað um málið í fjárlaga- og iðnaðarnefnd.

Segir í tilkynningu frá VG að hækkunin komi til viðbótar því að framlög til jöfnunar orkuverðs í strjálbýli hafa skerst að raungildi undanförnum árum, auk þess sem niðurgreiðsla til rafhitunar á svokölluðum köldum svæðum voru skornar niður um 200 milljónir króna á fjárlögum fyrir árið 2009. Samtals getur því verið um að ræða um tuga prósenta hækkun á rafmagnskostnaði heimila, einkum til sveita.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert