Byssumaðurinn sem lögregla leitaði í gærkvöldi og fannst loks í Breiðholti, gaf sig fram mótþróalaust laust fyrir miðnætti í gær. Að sögn lögreglu afhenti hann lögreglu skotvopnið mótþróalaust.
Allt tiltækt lögreglulið á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit Ríkislögreglustjóra höfðu leitað mannsins frá því tilkynning barst á sjöunda tímanum.
Maðurinn er nú í haldi og verður yfirheyrður seinna í dag.