Útsölur eru víðast hvar hafnar og hefur mikill fjöldi fólks lagt leið sína í verslanir m.a. í Kringlunni og Smáralind í leit að tilboðum.
Að sögn verslunarstjóra Debenhams í Smáralind myndaðist biðröð fyrir utan verslunina þegar útsalan hófst í gær og í dag er búðin einnig full af fólki. Ekki sé laust við að fleiri séu nú á ferðinni en þegar útsölur hófust í fyrra.