Að minnsta kosti tvær bifreiðar fóru út af veginum um Fagradal í dag. Engin slys urðu á fólki og litlar skemmdir á bifreiðunum. Nokkuð snjóaði á Austurlandi í morgun þannig að hálka myndaðist víða. Á fjallvegum var frost en þegar neðar dró var snjórinn orðinn að krapa sem olli nokkrum ökumönnum vandræðum.