Útsölur að hefjast

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Útsölur hefjast víða í dag og má búast við töluverðum afslætti af völdum vörum miðað við auglýsingar verslana. Nokkrar verslanir hafa þegar byrjað útsölu, þ.á m. IKEA þar sem útsala hófst 27.desember. Þá hefja einhverjar verslanir útsölur fyrst á mánudag.

Haft er eftir Gunnari Inga Sigurðssyni, framkvæmdastjóra Hagkaupa, í DV í dag að hann hafi það á tilfinningunni að verð muni hækka töluvert mikið eftir útsölurnar. Verslanir muni reyna að losna við vörur sem keyptar voru á gamla genginu til að rýma fyrir nýjum vörum.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert