Rólegt var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þessa fyrstu helgi ársins. Tveir gistu í fangageymslu lögreglunnar eftir nóttina fyrir óspektir og ölvun í miðbænum. Að öðru leyti gekk skemmtanahald í miðbænum vel fyrir sig, að sögn varðstjóra.
Sömu sögu er að segja af Suðurnesjum og Akureyri. Þar var rólegt og gekk skemmtanalíf vel fyrir sig.