Til stendur að mynda hreyfingu í Hafnarfirði gegn áformum heilbrigðisráðuneytisins um að flytja starfsemi frá St. Jósefsspítala til annarra sjúkrahúsa.
„Það er mikil óánægja meðal bæjarbúa og þeir vilja sporna við breytingunum. St. Jósefsspítali, sem hefur verið starfræktur í 82 ár, hefur sérhæft sig í sérgreinum og hefur á mörgum sviðum verið fremstur í ákveðnum aðgerðum. Það er ekki hægt að sætta sig við að starfsemin hér verði lögð niður eða flutt annað. Bæjarbúar vilja svör við því hvaða starfsemi sjúkrahússins eigi að flytja, hvers vegna eigi að flytja hana og hversu mikið sparist við slíka flutninga. Menn skilja heldur ekki leyndina sem hvílt hefur yfir þessu,“ segir Gunnhildur Sigurðardóttir, fyrrverandi hjúkrunarforstjóri á St. Jósefsspítala, en bæði starfsmenn spítalans og bæjarbúar hafa lýst yfir áhyggjum sínum við hana.
Sameining heilbrigðisstofnana hefur verið til skoðunar hjá heilbrigðisráðuneytinu og samkvæmt heimildum mbl.is verða breytingar á starfsemi þeirra kynntar á næstu dögum.