Fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fyrst var kona á sextugsaldri tekin fyrir þessar sakir í Garðabæ aðfaranótt laugardags en hún ók bíl sínum á tvo aðra bíla og kastaðist annar þeirra jafnframt á ljósastaur. Þegar komið var á vettvang tók konan afskiptum lögreglunnar mjög illa, sparkaði í einn lögregluþjón og hrækti á annan. Hún var færð á lögreglustöð og fékk að sofa úr sér áfengisvímuna.
Um kaffileytið á laugardag var karlmaður á svipuðum aldri færður á lögreglustöð en hann missti stjórn á bíl sínum í Mosfellsbæ og hafnaði bíllinn utan vegar. Maðurinn, sem hafði þegar verið sviptur ökuleyfi, var drukkinn, að sögn lögreglu.
Aðfaranótt sunnudags var för sautján ára stúlku stöðvuð í sama sveitarfélagi. Bíll hennar mældist á 129 km hraða á Vesturlandsvegi en stúlkan var undir áhrifum áfengis. Undir hádegi sama dag var svo piltur um tvítugt tekinn fyrir ölvunarakstur í Reykjavík en sá var stöðvaður í miðborginni.
Um helgina
var ennfremur einn ökumaður tekinn fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna
en sá var á ferð í miðborginni á sunnudagskvöld.