Aðstandendur borgarafunda sem haldnir hafa verið í Iðnó og Háskólabíói, hafa sérstaklega boðið Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra að taka þátt í pallborðsumræðum á opnum borgarafundi í Iðnó annað kvöld. Umræðuefnið er mótmæli, aðferðafræði mótmæla og borgaraleg óhlýðni.
Þetta er sjöundi fundurinn sem hópurinn stendur fyrir. Fjölmennir borgarafundir hafa verið haldnir í Háskólabíói þar sem stjórnmálamenn, ráðherra og fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar hafa setið í pallborði.
Annað kvöld á að ræða ólík viðhorf til mótmæla og ólíkar mótmælaaðferðir.
Frummælendur verða Hörður Torfason, frá Röddum fólksins, Eva Hauksdóttir, aðgerðasinni, ónefndur anarkisti og Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins.
Auk þeirra munu Katrín Oddsdóttir, laganemi og talsmaður Neyðarstjórnar Kvenna, Sigurlaug Ragnarsdóttir, fyrir hönd Nýrra tíma og Þórhallur Heimisson, prestur, taka þátt í pallborðsumræðum ásamt fleirum og svara spurningum viðstaddra.
Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra hefur sérstaklega verið boðin þátttaka í pallborðsumræðunum.
Hópurinn hefur hvatt ríkisstjórn Íslands og alla alþingismenn til að mæta á fundinn, hlusta á sína kjósendur og vera með í umræðunni.
Fundarform verður með sama sniði og áður, þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og fundargestir úr sal fá að tjá sig eða spyrja þátttakendur í pallborði spurninga. Hver aðili hefur tvær mínútur til að tjá sig svo gott er að vera vel undirbúinn.
Fundurinn verður í Iðnó og hefst klukkan 20.