Eygló vill embætti ritara

Eygló Harðardóttir.
Eygló Harðardóttir.

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lýst yfir framboði sínu í embætti ritara flokksins. Áður hafði Sæunn Stefánsdóttir, núverandi ritari, lýst yfir að hún sæktist eftir endurkjöri.

Eygló segir að framsóknarstefnan og samvinnuhugsjónin hafi átt hug hennar og hjarta undanfarin ár.

„Ég tel miklu skipta að Framsóknarflokkurinn komi út af flokksþingi með skýra stefnu og sterka forystu, sem byggi á samvinnu, samstöðu og valddreifingu í samfélaginu. Fyrir rúmum níutíu árum tóku menn höndum saman til að berjast gegn fákeppni, einokun og kúgun auðvaldsins. Það var hlutverk Framsóknarflokksins við stofnun og það þarf að verða hans megin hlutverk að nýju,“ segir Eygló Harðardóttir.

Hún segir að í þeirri stöðu sem nú sé uppi í samfélaginu, sé ekki síður mikilvægt að standa vörð um hinar dreifðu byggðir landsins. Samþjöppun og fákeppni sé ekki bara af hinu slæma í atvinnulífinu, heldur einnig í búsetu þjóðarinnar. Landsbyggðin sjái nú fram á að verða á ný hjartað í íslensku atvinnulífi og tryggja þurfi samkeppnisstöðu hennar á þeirri leið.

„Að þessum verkefnum vil ég vinna og því hef ég ákveðið að gefa kost á mér til embættis ritara Framsóknarflokksins. Ég hef haft mikla ánægju af flokksstarfinu og samstarfi við félagsmenn í gegnum starf mitt sem ritari Landssambands Framsóknarkvenna, ritari Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna í Suðurkjördæmi og gjaldkeri Framsóknarfélags Vestmannaeyja. Ég var í 4. sæti á lista Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi fyrir tvennar síðustu alþingiskosningar og sat um tíma á Alþingi sem varaþingmaður.“

 Eygló Harðardóttir tók sæti á alþingi í nóvember þegar Guðni Ágústsson sagði af sér. Ný forysta Framsóknarflokksins verður kjörin á flokksþingi Framsóknarflokksins helgina 16. til 18. janúar nk. Fjórir hafa lýst yfir framboði til formanns flokksins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert