Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í gærkvöldi sjö ökumenn vegna gruns um að þeir væru að undir áhrifum fíkniefna.
Voru þrír þeirra grunaðir um akstur undir áhrifum kannabis, þrír undir áhrifum amfetamíns og einn undir áhrifum kókaíns. Lítilræði af kannabisefni fannst við leit á einum ökumanninum og í bifreið hans.
Fjórir af þessum ökumönnum reyndust vera sviptir ökuréttindum að því er segir á vef lögreglunnar. Einn ökumannanna brást þá mjög illa við afskiptum lögreglu og barðist um á hæl og hnakka áður en róaðist niður eftir langt tiltal á lögreglustöð.