21 gróðurhúsalampa stolið

Í nótt var brotist inn í gróðurhús að Heiðmörk í Laugarási í Biskupstungum og þaðan stolið 21 gróðurhúsalampa. Vart var við gráa fólksbifreið á ferð við gróðurhúsið um klukkan eitt í nótt. Ekki er víst að hann tengist innbrotinu.

Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um þjófnaðinn eða hafa orðið varir við mannaferðir í og við Laugarás í nótt. Sími lögreglunnar er 480 1010.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert