„Lítilsvirðing gagnvart starfsfólki“ á Sauðárkróki

Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar á Sauðárkróki fundaði í dag um breytingar í …
Starfsfólk Heilbrigðisstofnunar á Sauðárkróki fundaði í dag um breytingar í heilbrigðisþjónustunni. Ljósmynd/HS

Starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki (HS) kom saman til fundar í dag þar sem samþykkt var harðorð ályktun. Átalin er ákvörðun heilbrigðisráðherra um að leggja niður stofnunina í núverandi mynd og sameina reksturinn Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, FSA.

Eins og fram hefur komið mun stofnunin á Sauðárkróki sameinast nýrri Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Akureyri, sem byggð verður upp frá FSA.

„Ekkert samráð hefur verið haft við heimamenn um þessi mál. Teljum við þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið allt frá því að fyrst var ákveðið að sameina stofnanirnar á Sauðárkróki og Blönduósi s.l. vor verulega ámælisverð og bera vott um lítilsvirðingu gagnvart starfsfólki HS,“ segir í ályktun starfsmanna.

Þar segir ennfremur að HS sé vel rekin stofnun sem fengið hafi gott orð á sig fyrir starfsemina, hvort heldur litið sé til faglegra sjónarmiða eða til árangurs í rekstri. „Því er það dapurleg ákvörðun ráðherra að flytja ákvarðanir um þjónustu og framtíð stofnunarinnar á Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA). Vitað er að FSA á í verulegum erfiðleikum með að ná endum saman rekstrarlega og því þykir okkur undarlegt að fela stjórnendum þeirrar stofnunar stærra hlutverk og ábyrgð á stærri og mun flóknari stofnun. Við spyrjum hvort hugmyndin sé sú að draga úr þjónustu á Sauðárkróki til þess að stoppa upp í hallan á rekstri FSA? Liggja fyrir tillögur um á hvern hátt megi ná fram áætluðum sparnaði á sameinaðri stofnun? Hver er kostnaður við sameiningu þessara átta stofnana í eina? Er þessi aðgerð þjóðhagslega hagkvæm?“

Öryggi sjúklinga stefnt í voða

Benda starfsmenn HS á að sameiningin nái yfir stórt landsvæði og milli stofnana sé um fjallvegi að fara. „Sameiningin nær yfir stórt landssvæði og milli stofnana er um fjallvegi að fara. Því efumst við um að ná megi fram þeirri hagkvæmni sem boðuð er. Við teljum þvert á móti að kostnaður muni aukast og gæði þjónustu muni hraka stórlega. Öryggi sjúklinga muni einnig verða stefnt í voða,“ segir ennfremur í ályktuninni.

Segja starfsmennirnir að eftir því sé tekið á stofnuninni hversu fáir þingmenn kjördæmisins hafi beitt sér til að stöðva „þennan gjörning“. Er skorað á heilbrigðisráðherra að endurskoða áformin og tryggja að Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki fái að halda áfram „því góða starfi sem hún hingað til hefur sinnt. Starfsfólk stofnunarinnar er tilbúið að leggja mikið á sig til að tryggja áfram þá góðu þjónustu sem hér er veitt,“ segir að endingu í ályktuninni, sem samþykkt var á fundinum í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert