Reykjanesbær óskar eftir viðræðum við heilbrigðisráðuneytið um að sveitarfélagið taki yfir starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS). Þetta var samþykkt á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar í morgun.
„ Mikilvægt er að tryggja að þær breytingar sem boðaðar hafa verið af Heilbrigðisráðuneytinu um skipulag heilbrigðisþjónustu, tryggi góða og örugga þjónustu fyrir íbúa á starfssvæði HSS auk þess sem að atvinnutækifærum fjölgi.
Til að tryggja áframhaldandi gæði í starfsemi sjúkrahúss, heilsugæslu og skurðstofu og aukin tækifæri á sviði þjónustunnar, er mikilvægt að tryggja skýra stefnu til framtíðar og fylgja henni fast eftir með framkvæmd. Reykjanesbær býðst til að hafa forgöngu um það.
Heilbrigðisráðuneytið hefur þegar samþykkt að funda í byrjun febrúar til þess að ræða hugmyndir um gerð þjónustusamnings við sveitarfélagið um rekstur heilbrigðisþjónustu," segir í samþykkt bæjarráðs í morgun.