Fjögurra bíla árekstur varð á Kringlumýrarbraut á tíunda tímanum. Ekki er talið að neinn hafi slasast alvarlega en einhverjir þurftu að leita aðhlynningar á slysadeild.
Áreksturinn varð við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Borgartúns. Að sögn lögreglu eru tildrögin óljós. Þó svo að ekki hafi orðið alvarleg meiðsl á fólki er ljóst að eignatjón er mikið og hafnaði einn bíllinn nánast ofan á öðrum.