Nýtt tæki til að leita að fíkniefnum

Bíllinn sem notaður verður til að gegnumlýsa gáma.
Bíllinn sem notaður verður til að gegnumlýsa gáma. mbl.is/Ómar

Tollstjórinn fær í dag afhent gáma gegnumlýsingarbúnaði sem er ætlað að efla aðgerðir gegn fíkniefnasmygli og auka öryggi vöruflutninga. Var bifreiðin keypt af kínverska fyrirtækinu Nuctech en fyrirtækið átti hagstæðasta boð í útboði vegna kaupanna. Kaupverðið er 1.318.800 evrur.

Segir í tilkynningu að búnaðurinn mun gera tollgæslunni kleift að stór auka fjölda skoðaðra gáma á ári hverju með talsvert minni fyrirhöfn en áður hefur tíðkast. Tollgæsla og aðrar löggæslustofnanir víða um heim hafa notast við bifreiðar sem þessa um nokkurt skeið og hafa þær skilað góðum árangri.

Gegnumlýsingartækið sem er af gerðinni MT1213LH-DE er byggt á Volvo FM 400 bifreið. Innan við mínútu tekur að gegnumlýsa 40 feta gám að myndgreiningunni undanskyldri. „Með slíkri gegnumlýsingu er hægt að sjá hvað leynist á bakvið allt að 320mm af stáli og hægt er að gegnumlýsa hluti sem eru 4,6 metra háir og 2,7 metra breiðir. Bifreiðin sjálf vegur rúm 24 tonn og er búinn 12,8 lítra, 6 sílendra 400 hestafla mótor. Með bifreiðinni er unnt að framkvæma gegnumlýsingu þó svo að rafmagnstenging sé ekki til staðar en þá er notast við 42 Kw rafstöð sem er hluti af búnaði bifreiðarinnar."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert