Mótmæla við Alþingi

Fyrir utan Alþingi
Fyrir utan Alþingi mbl.is/Júlíus

Mótmælendur sem komu saman fyrir utan stjórnarráðið í morgun eru farnir að Alþingishúsinu. Vill hópurinn mótmæla litlum aðgerðum ríkisstjórnar Íslands vegna innrásar Ísraelsmanna inn á Gaza. Fyrr í morgun skvetti hópurinn rauðri málningu á stjórnarráðsbygginguna.

Fréttamaður mbl.is sem er á staðnum segir að lögregla fylgist með aðgerðum hópsins en mótmælin hafa að mestu farið friðsamlega fram. Rúmlega þrjátíu manns taka þátt í mótmælunum.

Frá stjórnarráðinu í morgun
Frá stjórnarráðinu í morgun mbl.is/Júlíus
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert