Flestir þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ eru með verðtryggt húsnæðislán í íslenskum krónum eða um 62%. Um 30% eru með bílalán í erlendri mynt. 12,5% eru með verðtryggt bílálán í íslenskum krónum, 10% eru með annarskonar lán og tæp 9% eru með húsnæðislán í erlendri mynt. 16% voru ekki með nein lán og er það helst fólk í yngsta og elsta aldurhópnum sem er í þeirri stöðu, að því er fram kemur á vef ASÍ.
„Bílalán í erlendri mynt eru algengari hjá fólki í hærri tekjuhópunum en það vekur athygli að húsnæðislán í erlendri mynt eru hlutfallslega algengari hjá þeim sem eru í námi en þeim sem stunda fulla vinnu. Greiðslubyrði af myntkörfulánum hefur u.þ.b. tvöfaldast á einu ári vegna veikingar krónunnar," að því er segir á vef ASÍ.
30% telja miklar líkur á að þeir lendi í vandræðum með að láta enda ná saman
Einnig var spurt hversu miklar eða litlar líkur fólk telji á að það geti lent í erfiðleikum við að ná endum saman á næstunni. 54% telja litlar líkur á því en 30% telja miklar líkur á að þeir lendi í erfiðleikum og er það aukning frá því í október þegar 25% svöruðu spurningunni á þann veg.
57% þeirra sem hafa misst vinnuna telja miklar líkur á að þeir geti ekki látið enda ná saman á næstunni. Þá telja 39% þeirra sem hafa tekjur undir 250 þúsundum miklar líkur á að þeir lendi í fjárhagsvandræðum á næstunni.
Capacent Gallup gerði könnunina fyrir ASÍ dagana 8.-18. desember. Úrtakið var 1500 manns og var svarhlutfallið 54,3%.